Markmið fyrir golfhring - að slá í jafnvægi
Ég mun aldrei slá af meira afli en hæfileikar og jafnvægi leyfa.
Við ákveðnar aðstæður er tilhneyging til að slá af meira afli en við ráðum við, t.a.m. þegar við sláum á móti vindi. Hinsvegar er raunin sú að við slíkar aðstæður munu óþarfa átök auka líkurnar á að slá boltann hærra, sem styttir höggið á móti vindi. Einnig er hætta á að slá af meira afli en við ráðum við þegar við leikum með högglengri kylfingum. Margir kylfingar láta það fara í taugarnar á sér að slá styttra en meðspilararnir og reyna því oft að beita meiri átökum í sveiflunni en góðu hófu gegnir. Þetta leiðir af sér verri tækni, sem veldur því að við hittum boltann verr, og útkoman eru því enn styttri og villtari högg.
Hafðu í huga að leika „þinn leik“ . Notaðu þína sveiflu og þinn rythma til að slá góð teighögg á braut og góð innáhögg. Leikurinn snýst ekki um löng teighögg þegar ljóst er að yfir 50% af heildar höggafjölda á sér stað á og við flatir. Aðalatriðið er að koma boltanum í leik af teignum, því af brautinni eru mun meiri líkur á að ná betra skori heldur en úr kafagrasi.
Ef þér gengur erfiðlega að ná góðum rythma í sveifluna, ef þér finnst hún vera óþarflega hröð, prófaðu þá að telja 1-2-3 í huganum á leiðinni í aftursveiflunni. Einnig getur reynst vel að leika jólasvein og segja (í huganum :) Meeerrry í aftursveiflunni og "Christmas" í niðursveiflunni. Ef þú vilt skoða eldri grein um þetta smelltu þá hér. Enn eitt ráð sem gott er að æfa á æfingasvæðinu, en það er að halda toppstöðunni í aftursveiflu í 3-4 sekúndur áður en sveiflað er niður.
Ef þú hinsvegar vilt lengja teighöggin (hver vill ekki 20 metra í viðbót?), þá skaltu vinna í tækninni með PGA golfkennara og æfa vel á æfingasvæðinu. Lengri teighögg nást fyrst og fremst með betri tækni, en aukinn líkamsstyrkur og liðleiki hjálpa vissulega einnig mikið.
Þessi grein er fimmta í röðinni af greinum mínum um leikskipulag og hugarfar. Ef þú vilt lesa fyrstu fjórar greinarnar, smelltu þá á viðfangsefni greinanna: 1. Vanaferli. 2. Að halda sér í nútíðinni. 3. Að slá með jákvæðu hugarfari. 4. Að velja rétta kylfu í innáhöggi.
Með bestu kveðjum og von um gott gengi á golfvellinum.
Úlfar Jónsson PGA golfkennari ulfar@golfkennsla.is
Tilbaka | Prentvæn útgáfa
|