 |
 |
 |
| |
Golfkennsla - Pútt
|
|
|
Að pútta er einfalt. Tækniatriði sem hugsa þarf um eru fá, strokan er stutt og pútterinn er þannig gerður að boltinn einfaldlega rúllar í átt að holu og jafnvel ofan í, að lokum að minnsta kosti. Þrátt fyrir einfaldleikann er ekki hægt að segja að pútt séu auðveld og hefur mörgum reynst það mikil þraut að koma boltanum í holu jafnvel þótt færið sé stutt. Það er þó óhætt að segja að pútthluti leiksins sé gjörólíkur öllum öðrum þáttum hans og hafa frægir kylfingar jafnvel gengið svo langt að halda því fram að pútt ættu alls ekki að vera hluti af golfi. Sem betur fer er þó ekki svo, því án þess að pútta boltanum í holu fæst ekki skor á brautina.
Mikilvægi þess að ná mikilli leikni í púttum er ótvírætt því u.þ.b. 40% af heildarskori kylfings á sér stað á flötunum. Færni í púttum getur því skorið á milli miðlungskylfings og afburðakylfings, sigurs á móti eða meðalárangurs. Pútt hafa einnig mikil áhrif á hugarfarið og sjálfstraustið. Að missa í sífellu stutt pútt veldur oft neikvæðu hugarfari sem reynist erfitt að gleyma áður en teighögg á næstu braut er slegið. Þú ættir því alls ekki að vanmeta mikilvægi pútta, heldur verja drjúgum hluta æfingatímans, a.m.k. 33%, í að æfa púttin.
Þegar við berum saman pútttækni hjá bestu kylfingum heims sjáum við að aðferðirnar eru oft mjög mismunandi. Kylfingar geta vissulega leyft sér ýmsar frjálslegar aðferðir við að pútta, sbr. óhefðbundnar aðferðir við að grípa um pútterinn, langur pútter ofl. Samt sem áður eiga góðir púttarar margt sameiginlegt þegar grundvallaratriðin eru skoðuð, s.s. líkamstöðu, staðsetningu bolta og feril pútters í strokunni.
Eftirfarandi slóðir vísa þér á æfingar og leiki sem hjálpa þér að ná betri tökum á pútttækninni og að auki öðlast meira sjálfstraust í púttunum þegar mikið liggur við.
Púttæfing af 1-4 m færi
Hafðu línurnar í lagi og bættu púttin
Púttaðu tveimur boltum í einu til að þjálfa betri púttstroku
Púttleikur - 18 holu þríhyrningsleikur
Þjálfun góðrar púttstroku
Púttæfing - "höfrungahopp"
Púttæfing sem þjálfar tilfinningu fyrir lengd og stefnu
Ekki "frjósa" í púttunum -- taktu fyrr í gikkinn!
Ráð við of mikilli úlnliðanotkun í púttum
Höfuð upp að vegg til að þjálfa stöðu og stroku
Undirstöðuatriði pútta
Ferilsæfing
Púttæfing með sandjárni
Dragðu til baka leikurinn
Kylfa fyrir aftan holu bætir löngu púttin
Krossæfing fyrir stutt pútt
Púttleikurinn 21
|
 |
 |
 |
|
|