Betra golf, eftir Úlfar Jónsson og Arnar Má Ólafsson
Betra golf Eftir Úlfar Jónsson og Arnar Má Ólafsson Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason og fleiri. Útgefandi: Fróði hf. 1998 Bókagagnrýni eftir Steinþór Guðbjartsson, birt í Morgunblaðinu í nóvember 1998
 |
Þegar rætt er á jákvæðan hátt um gildi íþrótta er þess jafnan getið að íþróttir séu fyrir alla. Hins vegar er ljóst að eðli málsins samkvæmt geta ekki allir stundað allar íþróttir, en golfið er ein þeirra greina sem flestir geta stundað. Með öðrum orðum er golf ekki aðeins fyrir þröngan hóp atvinnumanna, aðra keppnismenn og þá sem betur mega sín, eins og virtist einkennandi fyrir íþróttina á árum áður, heldur alla, unga sem aldna, sem áhuga hafa á útivist. Komið hefur verið til móts við aukna eftirspurn með bættri aðstöðu fyrir kylfinga víða um land og er vel við hæfi að út sé komin vönduð, íslensk kennslubók í golfi. Betra líf (sic), bók Arnars Más Ólafssonar, golfkennara, og Úlfars Jónssonar, margfalds Íslandsmeistara í golfi, ber þess merki að þar eru miklir kunnáttumenn á ferð. Litmyndir Friðþjófs Helgasonar af höfundunum í ýmsum golfstellingum gefa efni þeirra félaga líka mjög aukið gildi og leynir sér ekki að hann kann ekki aðeins vel til verka með ljósmyndavélinni heldur er hann greinilega vel kunnugur íþróttinni.
Fjölmargar kennslubækur í golfi hafa verið gefnar út, en Betra golf er að mörgu leyti sérstök. Hún er samin af Íslendingum með Íslendinga í huga, tekur mið af íslenskum aðstæðum og lögð er áhersla á málrækt, en helstu hugtök í golfinu eru útskýrð á sérstökum orðalista á öftustu síðu. Bókin er jafnt fyrir byrjendur sem atvinnumenn í íþróttinni, kennara sem aðra áhugamenn. Allir, sem áhuga hafa á golfi, finna eittvað við sitt hæfi. Síðast en ekki síst er tekið á andlega þættinum, sem oft vill gleymast, og skýrt með reynslusögum hvað hann hefur mikið að segja.
Öll uppsetning og frágangur er til fyrirmyndar. Janus Guðlaugsson, íþróttafræðingur, ritar formála og að loknum inngangi höfunda er farið yfir undirstöðuatriðin, golfsveifluna og tækniæfingar fyrir hana, ráðleggingar á æfingabraut, leikæfingar á golfvelli, mismunandi aðstæður, stutta spilið, leik- og vallarskipulag, hugarþjálfun, golf á veturna og æfingaáætlun, en undir lokin eru ýmnsir fróðleiksmolar um höfundana.
Kylfingar á öllum stigum njóta íþróttarinnar, hver á sinn hátt, en bókin er sniðin fyrir þarfir allra. Hún er hjálpartæki til að byrjendur jafnt sem atvinnumenn geti bætt sig, orðið meistarar hver á sínu sviði. Hér og þar eru fleygar setningar heimsþekktra atvinnukylfinga, sem eru ekki aðeins sem gott krydd á góðan rétt heldur hafa yfirleitt mikilvægan boðskap fram að færa. Góð vísa er aldrei of oft kveðin. "Æfingin skapar ekki meistarann, rétt æfing skapar meistarann."
Fleiri bækur eða myndbönd | Tilbaka
|