Hraunkot æfingasvæði í Keili
 

 

 

Golfkennsla.is > Bækur & myndbönd

 

Bækur og myndbönd

 

Meistaragolf, eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson

Meistaragolf, eftir Úlfar Jónsson og Arnar Má Ólafsson
Útgefandi: Golfmyndir sf. í nóvember 2000
Umfjöllun eftir Skúla Unnar Sveinsson, birt í Morgunblaðinu í desember 2000

Kylfingum á Íslandi fjölgar ört og því er sjálfsagt ágætur markaður fyrir kennslumyndband því að eins og allir vita skapar æfingin meistarann, ekki síst í golfinu. Til að ná langt í þeirri íþrótt verða menn að æfa mikið og miðað við hvar á hnettinum við erum stödd dugar sumarið ekki til þess og því er tilvalið að skoða kennslumyndband um réttu handtökin yfir vetrarmánuðina og sveifla kylfum inni í stofu fyrir framan spegil þannig að þegar vora tekur séu menn tilbúnir í slaginn. Raunar er myndbandið einnig gott til þess að nota á sumrin þegar menn fyllast efasemdum um kunnáttu sína í íþróttinni.

Fyrir þá sem taka íþróttina alvarlega, hvort sem það eru meistarakylfingar eða meðaljónar, er myndband þetta kærkomið. Raunar gaf Arnar Már út þrjár myndbandsspólur fyrir nokkrum árum þar sem farið var yfir það sama og gert er á nýja myndbandinu. Síðan hefur Arnar Már þroskast sem kennari og á nýja myndbandinu leggur Úlfar til margar mjög gagnlegar æfingar. Aukinheldur er myndbandið styttra og hnitmiðaðra en spólurnar þrjár hér um árið og því betri kostur.

Þeir félagar hefja leikinn á að kenna mönnum að halda rétt á kylfunum og standa rétt við að slá. Farið er yfir sveifluna, sýnd eru mismunandi tegundir högga við mismunandi aðstæður, hvernig best er að velja kylfur, hvernig haldið er á pútternum og hvernig á að pútta. Stutta spilinu í kringum og á flötunum eru gerð sérstök skil enda mjög mikilvægur þáttur í golfleik. Þá er aðeins farið yfir hvernig menn skipuleggja leik sinn og spila þeir félagar eina holu með misjöfnum hætti til þess að sýna það - og fá báðir fugl á holuna.

Meistaragolf er ágætlega unnið myndband, tekið upp á Gut Duneburg-golfvellinum þar sem Arnar Már er golfkennari. Farið er yfir alla mikilvægustu þætti íþróttarinnar og tekst þeim vel að sýna hversu einfaldur, en á sama tíma flókinn og margbrotinn, leikur golfið er. Það er ekki laust við að mann langi til þess að draga fram kylfurnar og prófa, en ætli það verði ekki að bíða næsta sumars, nema maður hliðri aðeins til í stofunni hjá sér og hefji inniæfingar? Það er alltént nokkuð ljóst, ef marka má þá félaga, að fari maður eftir því sem þeir segja mun golfið skána hjá manni og til þess er jú leikurinn gerður.

Meistaragolf er góð viðbót við bókina Betra Golf eftir þá félaga en hún kom út fyrir tveimur árum. Arnar Már og Úlfar gera flókna hluti einfalda og áhorfendur geta lært heilmikið af myndbandinu sama hvað kylfingurinn er með í forgjöf.

Helst til finnst mér málfar þeirra stofnanalegt og nafnorðaveikin allsráðandi enda tala þeir mikið um sveiflugalla, sveifluvandamál, höggstöðu og lengdarstjórnun þar sem hæglega væri hægt að nota góð og gegn íslensk orð eins og að eiga í vandræðum með að meta fjarlægðina að einhverjum ákveðnum stað, til dæmis holunni.

Meistaragolf fæst í flestum golfvöruverslunum.

 



Fleiri bækur eða myndbönd | Tilbaka



Golfkennsla hjá Úlfari

Enn betra golf

Samtök atvinnukylfinga

Meistaragolf á DVD

Viltu auglýsa hér?


Golfkennsla.is